Our website is made possible by displaying online advertisements to our visitors.
Please consider supporting us by disabling your ad blocker.

Responsive image


Alexander mikli

Mósaíkmynd frá Pompei af Alexander mikla í orrustunni við Issus.

Alexander mikliforngrísku: Ἀλέξανδρος ὁ Μέγας / Aléksandros ho Mégas) eða Alexander 3. (Ἀλέξανδρος Γ' / Aléksandros ho Trítos) var konungur Makedóníu árin 336323 f.Kr. Á meðan hann gegndi því embætti stækkaði hann veldi Makedóníumanna í eitt það stærsta sem sögur fara af. Veldi hans náði þegar það var stærst frá Grikklandi í vestri, suður yfir Egyptaland, austur að ánni Indus þar sem í dag er Pakistan og norður inn í mið-Asíu.

Hann komst til valda tvítugur, þegar faðir hans var myrtur. Þá þegar hóf hann að stækka veldi sitt. Hann hélt því áfram til æviloka, en hann lést úr hitasótt í Babýlon árið 323 f.Kr., aðeins 32 ára að aldri.[1] Í kjölfar andláts hans liðaðist veldið á ný í sundur í nokkrar einingar, oftast undir stjórn einhverra hershöfðingja úr her hans.

Þó að veldi Alexanders hafi staðið stutt hafði það mikil og langvarandi áhrif en það dreifði grískættaðri menningum um öll miðausturlönd allt austur að Indlandi. Þá er talað um að með veldi hans hafi helleníska skeiðið í sögu miðausturlanda og sögu vestrænnar menningar hafist sem varði allt til þess þegar Rómverjar náðu Egyptalandi á sitt vald árið 31 f.Kr.

Alexander stofnaði yfir 70 borgir sem báru nafn hans, til dæmis Alexandría í Egyptalandi, Kandahar í Afganistan (áður Alexandropolis) og Alexandra Echate í Tadsjikistan. (sjá í bókina Íslands- og mannkynssaga NB1 - frá upphafi til upplýsingar)

Alexander var fyrst nefndur „mikli“ í leikritinu Mostellaria eftir rómverska leikritaskáldið Plautus (254–184 f.Kr.). Hann var nemandi Aristótelesar.

  1. „Kingdoms of the Successors of Alexander: After the Battle of Ipsus, B.C. 301“. World Digital Library. 1800-1884. Sótt 27. júlí 2013.

Previous Page Next Page