Japanska 日本語 [nihongo] | ||
---|---|---|
Málsvæði | Japan | |
Heimshluti | Austur-Asíu | |
Fjöldi málhafa | 127 milljón | |
Sæti | 8 | |
Ætt | Japanskt | |
Opinber staða | ||
Opinbert tungumál |
Japan | |
Tungumálakóðar | ||
ISO 639-1 | ja
| |
ISO 639-2 | jpn
| |
SIL | JPN
| |
ATH: Þessi grein gæti innihaldið hljóðfræðitákn úr alþjóðlega hljóðstafrófinu í Unicode. |
Japanska (日本語, nihongo) er aðal tungumálið í Japan og um 130 milljónir manna tala það, flestir í Japan. Það er áttunda mest talaðaa tungumál heims. Japanska er japanskt mál, sem inniheldur Ryukyu-mál.
Japan er eina landið þar sem japanska er hið opinbera tungumál (eyjan Angaur hefur þrjú opinber tungumál og er japanska eitt af þeim). Japanska er þó töluð í mörgum öðrum löndum sökum landsflutninga og ber helst á henni í Bandaríkjunum, aðallega í Kaliforníu og Hawaii, Brasilíu og Filippseyjum. Japönsk menning hefur þróast stöðugt í margar aldir og ólíkt mörgum öðrum þjóðarmenningum hefur hún ekki orðið fyrir barðinu á innrásum þjóða og menningu þeirra fyrr enn nú á seinni árum. Japanska hefur í gegnum tíðina fengið mikið af tökuorðum úr kínversku, portúgölsku, hollensku, þýsku, frönsku og nýlega ensku. Um 60% orðaforða japönskunnar er tökuorð úr kínversku.