Keir Starmer

Sir Keir Starmer
Starmer árið 2024.
Forsætisráðherra Bretlands
Núverandi
Tók við embætti
5. júlí 2024
ÞjóðhöfðingiKarl 3.
ForveriRishi Sunak
Leiðtogi breska Verkamannaflokksins
Núverandi
Tók við embætti
4. apríl 2020
ForveriJeremy Corbyn
Persónulegar upplýsingar
Fæddur2. september 1962 (1962-09-02)
Southwark, London, Englandi
ÞjóðerniBreskur
StjórnmálaflokkurVerkamannaflokkurinn
MakiVictoria Alexander (g. 2007)
Börn2
BústaðurDowningstræti 10
HáskóliHáskólinn í Leeds
St Edmund Hall, Oxford
Undirskrift

Sir Keir Rodney Starmer (f. 2. september 1962) er breskur stjórnmálamaður sem hefur verið forsætisráðherra Bretlands frá 2024. Hann hefur verið leiðtogi Verkamannaflokksins frá 2020.

Hann tók við formannsembættinu í Verkamannaflokkinum af Jeremy Corbyn árið 2020 eftir að Verkamannaflokkurinn galt afhroð í þingkosningum árið áður. Starmer vann áður sem saksóknari hjá embætti breska ríkissaksóknarans.[1] Starmer hefur verið lýst sem málsvara „mjúka vinstrisins“ innan Verkamannaflokksins en hann hefur þó lýst yfir vilja til að halda í róttækni síðustu ára.[2] Í þingkosningunum 2024 vann Verkamannaflokkurinn stórsigur og varð Keir því að forsætisráðherra þann 5. júlí 2024.

  1. „Brýnt að vernda réttin til að "stuða". Blaðamannafélag Íslands. 12. október 2012. Sótt 8. júní 2020.
  2. Tilvísunar villa: Villa í <ref> tag; tilgreindu texta fyrir tilvísun með nafnið kjarninn

Keir Starmer

Dodaje.pl - Ogłoszenia lokalne